Vörur og þjónusta

Adirondackstóllinn á rætur sínar að rekja til Norður-Ameríku og er þekktur fyrir sitt einstaka útlit, breiða arma, hallandi bak og afslappaða setstöðu. Sígild hönnun sem stenst tímans tönn. Stólarnir okkar eru framleiddir úr sérvöldum, kvistalausum 26mm Risalífvið (e.Western Red Cedar) stundum kallað Sedrusviður á Íslandi þótt tréð sé ekki sannur sedrusviður. Skrúfur og boltar úr ryðfríu stáli. Áhersla er lögð á vandað handverk, góðan efnivið og þægindi
Leit