Þetta eru stór , sterkbyggð og stöðug útiborð með áföstum bekkjum úr þykkum gagnvörðum plönkum sem gefur betri endingu og geta staðið úti í öllum veðrum. Engar sjáanlegar skrúfur í bekkjum og borði sem gefa fágaðra yfirbragð.
Átta manns geta hæglega setið við borðið sem er 220 cm á lengd. Okkar stóru nestisborð eru frábrugðin klassísku nestisborðunum að því leiti að þau eru bæði lengri og með breiðari borðplötu.
Þessi klassísku áningaborð sóma sér vel á pallinn í garðinn, leiksvæðið eða sem nestisborð í sveitinni.
við bjóðum einnig á að bera á borðin fyrir fólk sjá frekari upplýsingar hér Bekkjaborð - STÓRT 8 manna + Viðarvörn