Garðhúsgögn

Garðhúsgögn fyrir íslenskt veðurfar - Ending og þægindi

Falleg og vönduð garðhúsgögn gera útisvæði að hlýlegum og notalegum samverustað fyrir fjölskyldu, vini og aðra gesti.
Við hjá Borð og Bekkir framleiðum og seljum garðhúsgögn sem eru sérstaklega hönnuð fyrir íslenskar aðstæður, þar sem vindur, rigning, snjór og saltloft krefjast sterkra og endingargóðra efna.
Við leggjum áherslu á klasíska hönnun, trausta smíði og gæði svo garðhúsgögnin endist í mörg ár.

Kíktu á Garðhúsgögnin Okkar

Garðhúsgögnin okkar eru sett saman á verkstæði okkar út á Granda í Reykjavík skoðaðu á úrvalið hér á heimasíðunni eða hafðu samband til að koma og skoða og ræða málin.
Nestisborð eða Bekkjaborð eru klássíksk hönnun og sem þarf ekki að kynna

Klassísk hönnun og gæðaefni

Saga okkar hófst með einfaldri hugmynd, að smíða borð sem gæti staðið úti allt árið, án þess að fjúka eða þarfnast mikils viðhalds. Þessi hugsun hefur verið leiðarljós okkar frá upphafi. Fyrsta borðið sem við smíðuðum árið 2018 stendur enn ómeðhöndlað úti á berangri og sýnir hversu traust og endingargóð garðhúsgögnin okkar eru.
Garðhúsgögnin okkar eiga það sameiginlegt að vera klassísk í útliti og með áherslu á styrk, stöðugleika og endingu. Sem dæmi er viðurinn sem við notum gagnvarinn eða úr trjátegundum sem sýnt hafa náttúrulega mótstöðu gegn fúa. Þau sóma sér vel hvort sem er í heima- eða almenningsgarði.

útiborð fyrir veitingastaði

Garðhúsgögn fyrir heimili, fyrirtæki og sveitarfélög

Við þjónustum bæði einstaklinga og fagfólk og úrvalið okkar spannar allt frá stökum stólum í garðinn í stór og voldug bekkjaborð fyrir veitingastaði skólalóðir og almenningsgarða þar sem varan þarf að standast mikið álag. Hér má til dæmis sjá borð frá okkur á Mathöll Granda sem voru sett upp vorið 2019. 
Garðhúsgögn - útiborð með stökum bekkjum

Útisvæði sem þú vilt verja meiri tíma á

Hvort sem þú vilt garðborð fyrir grillveisluna, traustan bekk við vinnustaðinn eða traust nestisborð í garð fjölbýlishússins þá hjálpum við þér að finna lausn sem gerir útisvæðið þitt að stað sem þú vilt verja meiri tíma á.

Sterkbyggð útihúsgögn

Kíktu á úrvalið eða hafðu samband.
Leit