Fyrirtækið

Um Borð og bekki

Borð og bekkir var stofnað árið 2020 í kjölfar þess að okkur vantaði verkefni á tímum Covið því lítið var að gera í ferðaþjónustu sem við störfuðum við að aðal starfi.
Sagan byrjaði þó um tveimur árum fyrr því við höfðum lengi leitað að góðum og sterkum áningaborðum á lóðina sem við erum að græða upp og planta trjám.  Farið var í að smíða borð sem okkur þótti hentug, falleg og myndu þola að standa úti allt árið.
Eftir að við smíðuðum þesssi borð fór það að spyrjast út og fólk óskaði eftir að fá hjá okkur borð í garðinn eða pallinn.  Við smíðum nokkur útiborð en lítið fór fyrir  okkur vegna tímaleysis. Þegar heimsfaraldurinn skall á lá beinast við að athuga hvort við gætum ekki gert meira úr þessu og viðtökurnar hafa verið frábærar og sjá má bekkjaborðin okkar við marga veitingastaði, mathallir,  í einka görðum sem og sameiginlegum svæðum um allt land.

Markmið okkar hefur alltaf verið að bjóða uppá falleg en harðgerð og praktísk útihúsgögn.
Á þeim árum sem fyrirtækið hefur verið starfrækt hefur vöruúrvalið þróast talsvert.  Við byrjuðum á borðum með áföstum bekkjum sem við köllum Bekkjaborð og í dag smíðum við einnig vandaða innibekki, nestisbekki og stök útiborð og með lausum bekkjum sem vekja athygli og eftirtekt. Við höfum einnig flutt inn borð sem og sérsmíðað ýmsar stærðir og útfærslu eftir því sem hentar hverju sinni.
#Garðhúsgögn #útihúsgögn
Leit