Útihúsgögn
Útihúsgögn fyrir allar aðstæður - Gæði, þægindi og ending
Velkomin á bordogbekkir.is, þar sem þú finnur vönduð og stílhrein útihúsgögn fyrir garðinn, sameignina, torgið eða almenningssvæði. Hvort sem þú þarft gæðahúsgögn fyrir einkagarð eða vandaða og sterkbyggða bekki og borð fyrir opin svæði, þá finnur þú réttu lausnina hjá okkur.
Skoðaðu útihúsgögnin okkar
Okkar útihúsgögn eru sett samann á verkstæði okkar út á Granda í Reykjavík kíktu á úrvalið hér á heimasíðunni eða hafðu samband til að koma og skoða.
Klassísk hönnun og gæðaefni
Okkar útihúsgögn eru framleidd úr hágæðaefnum sem standast íslenskar aðstæður. Þau eru hönnuð með lágmarks viðhald og hámarks endingu í huga.
Stílhrein og praktísk útihúsgögn
Hvort sem þú vilt hefðbundin klassísk útihúsgögn eða nútímalega lausn sem fellur vel að umhverfinu og eflir notagildi útisvæða, bjóðum við fjölbreytt úrval af vörum:
- Nestisborð fyrir almenningssvæði, garða og skóla
- Stök útiborð og bekki á pallinn eða bústaðinn
- Útiborð með hjólastólaaðgengi fyrir betra aðgengi
- Garðbekki og borð fyrir heimili og veitingastaði
- Útistólar á pallinnog við eldstæðið.
Ending og lágmarksviðhald
Við skiljum að útihúsgögn þurfa að þola breytilegt veðurfar. Af þeim sökum eru allar vörur okkar hannaðar með lágmarks viðhald og hámarks ending í huga. Við leggjum áherslu á efni sem eru veðurþolin og hönnuð fyrir hámarks nýtingu. Borðin okkar hafa reynst vel og þau elstu eru smíðuð 2018 og í mikilli notkun, eins og við mathallir og á opnum svæðum.
Gerðu útisvæðið ánægjulegra
Hvort sem þú ert að hanna garð, svalir, útisvæði veitingastaðar eða almenningsgarð, vönduð útihúsgögn gera upplifunina betri. Skoðaðu vöruúrvalið okkar og finndu lausnina sem hentar þínum þörfum.
Hafðu samband við okkur i dag fyrir frekari upplýsingar eða tilboð!
